23maí

11+1=16 (í Hollandi sko)

Þá er ég komin heim eftir þrusu skemmtilega helgarferð til Hollands. Því miður stóðum við ekki uppi sem sigurvegarar en samt sem áður skemmtum við okkur konunglega. Lögðum af stað kl. 14:15 og gekk ferðin alveg feikilega vel þangað til ca. 5 km frá Wesel (bær alveg við landamæri Hollands og Þýskalands) því þar ákvað bíllinn okkar bara að gefa upp öndina. Hann gjörsamlega gaf upp öndina og var úrskurðaður látinn á staðnum. Biðum í 2 tíma á Aral bensínstöð í Wesel eftir að vera sótt...það var virkilega skemmtilegt. Komust loks til Gennep um 9:30 og áttum þá eftir að tjalda. Það jafnast ekkert á við það að tjalda í myrki.
Við áttum því miður engann leik á fimmtudeginum svo við chilluðum bara allan daginn. Spiluðum inn á milli og horfðum svo og dömurnar og herrana spila. Áttum fyrsta leik um 11 daginn eftir (föstudag) gegn hollensku liði. Frábært...við vorum í riðli með 3 öðrum hollenskum liðum. Og það sem meira var að þegar liðin voru að spila, voru 2 meðlimir úr 1 liðinu sem var ekki að spila látnir dæma. Þannig að þegar við vorum að spila, auðvitað alltaf gegn Hollendingum voru alltaf Hollendingar að dæma. Í einum leiknum voru dómarastelpurnar gómaðar fyrir að gera hollenska liðinu 5 stig í staðin fyrir 1, semsagt 11+1=16 (þær voru með 11 fyrir, fengu svo 1 og þá kom út 16). En ekki græddu þær á þessu því sigurinn var dæmdur á okkur Hlæjandi Þessir 3 leikir gegn Hollendingunum var eiginlega það eina sem við áttum að spila. En við fengum að spila sem dömur en ekki unglingar á laugardeginum og gekk það svona lala. Það var auðvitað bara til að hafa gaman og æfing. En allt voru þetta eiginlega bara gamlar kerlingar sem voru örugglega búnar að æfa í 20 ár svo við töpuðum öllum leikjunum. En engu að síður var þetta þrusu góð æfing. Við stefnum að því að vera miklu betri næsta ár (sem við verðum örugglega). En herraliðið hjá BC Cuxhaven varð allavega meistarar og erum við afar stoltar að koma frá sama liði og þeir Hlæjandi En allavega var þetta alveg súper skemmtileg helgi og er mér strax farið að hlakka til næstu sem verður eftir ár. Veðrið var líka alveg geðveikt. Örugglega vel yfir 30° og glampandi sól. Það ringdi reyndar 1 nótt og urðum við fyrir því ólána að tjaldið lak og allt varð blautt. Meira að segja nærbuxurnar mínar sem voru neðstar í töskunni voru blautar.

En þetta er nú svona það helsta sem gerðist.
Vonandi fæ ég einhver komment fyrir þetta!

23. maí 2007 klukkan 18:35
Hafrún Huld Ólafsdóttir
5 athugasemdir
15maí

Farin

Jæja er að fara til Hollands á morgun. Ferðaspenningurinn alveg í hámarki Glottandi

Svo ég segi bara góða langa helgi...eða er ekki löng helgi á Íslandi líka? Hér er allavega frí á fimmtudaginn og föstudaginn.

Tschüss bis Sonntag Brosandi

15. maí 2007 klukkan 19:36
Hafrún Huld Ólafsdóttir
3 athugasemdir
13maí

MYNDIR!

Ég var að setja inn myndir í myndaalbúmið frá gærdeginum þar sem við vorum að vinna í húsinu.

Endilega skoða og kvittaa!

Hafrún Huld

13. maí 2007 klukkan 10:16
Hafrún Huld Ólafsdóttir
2 athugasemdir
10maí

Komumst við upp úr forkeppninni??

Já ég held að það sé alveg spurning dagsins. Ég vona svo sannarlega að við komust upp úr henni í ár. Annars veit ég voða lítið um keppnina í ár. Ég heyrt brot úr öllum lögunum en eiginlega enginn í fullri lengt. Það er örugglega út af því að hér þekkist varla Eurovision. En það er nú sem betur fer sýnt í sjónvarpinu svo við missum ekki af því.

Frau Kreft er loksins komin heim af sjúkrahúsinu/endurhæfingarstöðnni svo nú er ég loksins byrjuð að fá þýskukennslu aftur og hjálp við heimanámið. Það hlítur að vera ömurlegt að fá svona slag. Að þurfa að byja allt upp á nýtt. Hún sagði mér svona eitt og annað það sem hún þurfti að læra upp á nýtt. Aldrei hefði mér dottið allt þetta í hug. Núna hefur hún bara mátt í hægri hendinni og getur ekkert gert með vinstri. Og það sem maður verður að læra þegar maður missir eina hendi bara eitt, tveit og bingó er alveg hellingur, t.d klæða sig (ég prufaði það sjálf og það gekk nú bara eiginlega ekki), setja tannkrem á tannburstan (við höldum á tannburstanum í annari og setjum tannkrem á með hinni) en með einni hendi er það auðvitað erfiðara, smyrja brauð og taka flusið af kartöflunum. En samt sem áður gengur þetta alveg ágætlega....hún getur allavega enn skrifað, talað og hjálpað mér HlæjandiHlæjandi

Málararnir eru byrjaðir að lakka og pússa og svona, gera fínt. Þeir eru búnir að vera að pússa á fullu í 3 daga og eru bara búnir með eina hlið. Þetta tekur smá tíma Þögull sem gröfin

Það eru aðeins 6 dagar í Hollandsferðina Brosandi Ég er samt búin að heyra að það verði rigning allan tíman. Jess, hvað er betra en að gista í tjaldi í helli rigningu?....uuuhh ALLT. Þetta mót er úti og meira að segja strandblakmót....mmmh blót og öll í sandi.



 

10. maí 2007 klukkan 17:16
Hafrún Huld Ólafsdóttir
1 athugasemd
04maí

,,Maður getur alveg verið á eyrunum, það er svo gott veður."

Obbobobb hvað er málið með mig og nenna ekki að blogga? Síðasta blogg var næstum á seinni hluta síðustualdar. Jæja reyni að bæta það upp núna og ætla ég mér að gera það í svona stikkorða/setninga bloggi:

~ Húsamálin ganga vel.
~ Búið er að skoða kamínu.
~ Fáum tilboð á morgun.
~ Málarinn kemur og kannar ástand húsins á sunnudaginn.
~ Parketleggjarinn einnig.
~ Búið er að staðfesta heita pottinn.
~ Hann kemur í lok júní.
~ vinnuvikan sem senn er á enda innihélt aðeins 2 skóladaga.
~ Þar af var stærðfræðipróf í morgun.
~ Vona svo sannarlega að ég fái eitthvað af viti úr því.
~ Vokabeln próf í ensku á mánudaginn.
~ 12 dagar í Holland.
~ Fartölvan mín ónýt?
~ Hún virkar allavega ekki.

Já þetta er svona það helsta sem gerst hefur frá síðasta bloggi. En ég verð að skrifa hérna inn nokkur ótrúlega fyndin gullkorn úr bók sem ég á sem heitir GULLKORN úr hugarheimi íslenskra barna. Þetta er bara fyndið.

,,Mér er svo illt í maganum, að ég verð að nota trefil."
,,Það er líka til jólasveinn sem heitir Rassskellir."
,,Fyrst ætla ég að vera Batman, svo Superman og svo fer ég í nudd."
,,Ef maður lemur engil í hausinn, þá breytist hann í ryk."
,,Skýin eru leikföng vindsins".
,,Heilinn í mér valdi leikinn."
,,Má ég fara úr hárinu?"
,,Pabbi missti eggið á gólfið og það kom djús."

Góða helgi 

Hafrún Huld

 

04. maí 2007 klukkan 19:47
Hafrún Huld Ólafsdóttir
2 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Hafrún Huld Ólafsdóttir
  • Staður: Cuxhaven
  • Atvinna: Er í 12. bekk í Lichtenberg-Gymnasium
  • Hjúskaparstaða: Laus&liðug

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit