30mars
Erum hætt við að fara til Hamborgar á morgun. Ástæður:
- Pottarnir eru of dýrir í Þýskalandi.
- Svo við nennum ekki að keyra til að bara skoða.
- Pottasýningin er ekki í Hamborg.
- Hún er í Wolfsborg (það er samt svipað langt frá).
Erum samt búin að finna ágæta lausn. Hún hljómar svona: Kaupa pottinn í Danmörku. Hann er nokkuð ódýr þar og þá sleppum við, við að borga skatt eða eitthvað svoleiðis. En kaupa viðarumgjörðina utan um hann á Íslandi og senda hana út.
Svona hljómaði það. Ég kveð þá að sinni og óska ykkur góðrar helgar.
30mars
Moin Moin...
Eins og þig kannski (vonandi) sjáið þá var ég að breyta um útlit á síðunni. Ákvað að setja inn mynd af Brandenborgar hliðinu svona af því að við erum nú einu sinni í landinu. Hvað finnst ykkur um nýja útlitið? Betra eða verra? Comment!
Föstudagurinn 30. mars í dag. Það þýðir að á morgun er laugardagurinn 31. mars og þá höfum við ákveðið að fara til Hamborgar á heita potta sýningu :D Af öllum líkindum kaupum við heitan pott. Spurningin er bara hvar? Hér í Þýskalandi kostar hann um 8000 evrur eða um 700.000kr en á Íslandi kostar hann bara um 550.000 + það sem kostar að senda hann og skattur og eitthvaðfleira. Svo við ætlum að kíkja á morgun og gá hvort pottarnir séu ekki bara á einhverju sýningarverði og þar af leiðandi aðeins ódýrari. Enn annars verður hann örugglega bara keyptur á Íslandi! Ég hugsa að þetta sé það eina sem er ódýrara á Íslandi en hér.
Haldiði ekki bara að heimasætan í Theodor-Storm-Str.9 sé búin að mæta í vinnu síðustu 3 daga. Jabb ákvað að drífa mig á miðvikudaginn kl.6 þrátt fyrir óendanlega mikið kvef og hósta. Dugnaður hér á ferð. Í gær og í dag var samt enn meiri dugnaður því þá mætti mín í vinnu kl. 5. Það þýðir að ég vaknaði kl. 4 (kl.2 á Íslandi). Ég er ótrúlega stolt af sjálfri mér. En aftur á móti er kvefið og hóstinn ekkert að batna. Kræst hvað ég er orðin pirruð að þessu drasli *pirr pirr*
Jæja ekki var það nú fleira í dag svo heimasætan kveður bara að sinni.
Hafrún Huld
26mars
Þetta er nú eiginlega löngu hætt að vera fyndið. Seinasta vika einkenndist af kvefi, hósta og öllu því sem tilheyrir. En kvefinu þótti það nú ekki nóg að stoppa hjá mér "bara" í eina viku svo það fór en kom svo aftur og heiðraði mig með nærveru sinni í nótt. Fallega hugsað hjá því. Að þessu sinni hefur það þó boðið einhverjum óþolandi sýklum með svo nú ligg ég hér og eiginlega nær dauða en lífi, ljótur hósti, ógeðslegt hor, beinverkir frá hell og slappleiki djöfulsins + hiti *hjálp*. Vona svo sannarlega að þetta sé ekki pestin sem ég fæ alltaf, alltaf einu sinni á ári en hún hljómar svona: bullandi hiti, beinverkir nákvæmlega allstaðar (meira að segja í litlu hægri tánni) og ef þú ert heppin geturu staðið upp úr rúminu til að fara á klóið, semsagt hrikalegur slappleiki. Já og eitt enn, þessi pest stendur alltaf yfir í eina viku. En maður velur þá allavega rétta tímann. Enginn heima, ekkert að gera nema bíða eftir að tíminn líði, enginn skóli og svona ýmislegt. Ætlaði að fara að vinna hjá pabbos á morgun en ég held það verði að bíða aðeins. Tschüss að sinni!
18mars
Já þá er það ákveðið hvar við munum eyða parti af páskafríinu. Í München ætlum við nefnilega að vera sannir túristar og skoða hvað borgin hefur upp á að bjóða og mjög líklega versla eitthvað. Við (aðalega pabbi) pöntuðuð hótelherbergi í gærkvöldi og ákvöðuð við að vera bara flott á því einu sinni. Við ætlum semsagt ætlum að gista á einu Hilton hóteli eða Hilton Munich City Hotel í München. Ætlum að vera frá 5. - 9. apríl. Annars á bara að vera heima og hafa það gott. Slóðin á hótelið er www.hilton.de/muenchencity
Annars ekkert að frétta. Jú eitt er í fréttum. Vikan gjörsamlega þaut framhjá mér eins og svo oft áður. Í næstu viku eru 2 próf á áætlunartöflunni, tónmennt og efnafræði. Ég er svoldið spennt fyrir efnafræðinni, ætla mér að ná góðri einkunn. Tónmenntin er hinsvegar eitthvað ótrúlega flókin mennt og ég bara skil alls ekkert. Munurinn á mér og bekkjarfélögum mínum í tónmennt er sá að þau byrjuðu að læra tónmennt í 5. bekk en ég í 10. bekk. Svo það er kannski ekkert skrýtið að ég skilji alls ekkert?
14mars
Já maður spyr sig. Aðeins 9 dagar í páskafrí og þar af bara 7 kennsludagar. En þá kemur spurningin, hvað skal gera í páskafríinu? Ísland? Skíðaferðalag? Bara vera heima og sofa? Ekki hugmynd. Langar svoldið til Íslands og einnig langar mig að draga mömmu og pabba í Svartaskóg á skíði. Ég er alveg til að fara þangað aftur. Allavega langar mig ekki til að vera bara heima. Allar stelpurnar eru að fara í ferðalag eitthvað. Svo, einhverjar hugmyndir?
Mér var hugsað til veðursins í dag. Við sitjum hér í sól og blíðu. Vorið er svo sannarlega komin en á meðan er fólk nánast að berjast fyrir lífi sínu á Íslandi sérstaklega Verstfjörðum. Það er hræðilegt að heyra um þetta sjóslys og votta ég aðstendendum þeirra sem létust mína dýpstu samúð. Eftir því sem ég best veit er enn snjóflóðahætta og fólk varað við að vera á ferðinni hjá hesthúsunum í Hnífsdal. Ömurlegt.
En ég er ekki sátt. Eftir síðasta blogg/skíðaferðablogg og myndir kvittaði enginn. Ekki ein hræða!! Mér finnst ég allavega eiga það skilið núna.