Lífið!

Ég spyr um mann: Við hlið mér situr maður. Hann tilheyrir þeim flokki fólk sem við nefnum kaupótt fólk. Ekki nægði honum að kaupa sjónvarp og frystiskáp of fleira fyrir jól og heldur hann því áfram núna. Fyrir ca. 2 vikum kom hann heim með PYLSUGRILL (voða sniðugt að hans mati, ekki okkur hinum). Þetta umtalaða grill á að hita pylsurnar og gera gat í brauðið og bara nefnið það. En jæja nóg um það. En semsagt í dag kom hann heim með NUDDPÚÐA (til að setja um hálsin) og innifalið í nuddpúðanum er útvarp. Svo getur maður ýtt á takka og þá vælir fugl eða það heyrist svona hljóð eins og þegar vatn rennur. Á að vera róandi! ÞETTA ER ÞAÐ VITLAUSASTA SEM ÉG HEF SÉÐ!!
En að manninum....dettur ykkur eitthver í hug?? Margir hafa örugglega fattað það þegar ég nefndi pyslugrillið hehe. En hér er mynd af manninum með hin umtalaða ,,nuddpúða":

Já einmitt...Ólafur Rósant Sigurðsson er maðurinn. Og talandi um að konur séu kaupóðar.
ÉG NÁÐI BÓKLEGA HLUTANUM Í BÍLPRÓFINU Í FYRSTU TILRAUN MEÐ 3 VILLUR!!
GLÖÐ - GLAÐARI - GLÖÐUST
EIGIÐ GÓÐAN DAG
KVEÐJA HAFRÚN
Fyndið hvað sumir kennarar byrja kennslutíman alltaf eins. Stærðfræðikennarinn minn byrjar hann alltaf á da bin ich wieder (hér er ég aftur), trúarbragðakennarinn minn (síðan í fyrra) sagði alltaf: einen wunderschön guten Morgen og það með svona söngtón líka hehe. Mér datt þetta bara svona í hug því mér fannst þetta með stærðfræðikennaran passa svo vel núna...ég meina langt frá síðasta bloggi en hér er ég loksins.
Ég er ekki einu sinni komin með bílpróf en hef það strax á tilfinningunni að ég sé ökuníðingur hehe. Nei nei smá djók...hér má ég keyra á 150 km/h. Ég var semsagt í ökutíma í dag að keyra á hraðbrautinni
Vá það var geðveikt. Keyrði nú samt eiginlega bara í 130 km/h en 150 km/h til að taka fram úr. Þetta var geðveikt ![]()
Harpa snúlla átti afmæli í gær. 9 ára skottan. Til hamingju með daginn í gær Harpa mín ![]()
Gréta Þórey á 3ja ára afmæli í dag...einnig til hamingu með það sæta.
Annars voða lítið að frétta. Er gjörsamlega dottin í Grey's Anatomy , aftur hehe. Horfði á allar 3 seríurnar um jólin og er að byrja aftur núna. Hef ég hefði tíma gæti ég horft allan daginn út og inn.
Hef svo sem ekkert meira að segja....lífið hér er voða einfalt þannig lagað séð hér í Cux. Skóli, heimanám, ökutími, ökuskóli, blak, aukatímar, borða og SOFA. Frekar leiðinlegt til lengdar (það er á stefnuskránni að finna mér tíma fyrir mig sjálfa).
Adios
Ég var að setja inn nýjar myndir frá Spánarferðinni inn í albúmið. Ég kemur svo smá ferðasagi (þó ekki svo nákvæm eins og um jólin
).
Miðvikudagurinn fór eiginlega bara í ferðalag...fyrst til Billund og svo til Spánar. Komumst á endanum til Mudamiento (bærinn þeirra). Fimmtudagurinn var tekin rólega fram eftir degi þar sem allir voru frekar þreyttir eftir ferðalagið. Fórum svo í göngutúr í hverfið, týndum m.a appelsínur og mandarínur. Á heimleiðinni lentum við í hálfgerðu ævintýri. Við vorum að labba yfir brú þegar allt í einu heyrist í Dúdda: ,,nei sko, þarna er veiðikassi". En þegar betur var gáð lá skartgripaskrýn í skurðinum
Því var farið heim og veiðistöngin sótt og ferðinni heitið aftur að skurðinum. Dúdda datt svo önnur hugmynd í hug. Við stoppuðum á ruslahaugunum á leiðinni, náðum í allavega 2m bambus, náðum í krók af herðatré á haugunum og buttum það saman með vír
Þannig var ekkert mál að ná skrýninu upp. Ég held ég láti myndirnar svo bara tala sínu máli um skartgripina.
Á föstudaginn keyrðum við til Callosa de Segura. Lögðum í bænum og löbbuðum upp í fjall. Skoðuðum m.a kirkju þar sem stóð eiginlega bara á klettabrún...rosa flott. Um kvöldið fórum við svo út að borða á kínverskum veitingastað. Keyptum hlaðborð fyrir 6 með 10 réttum...mmm það var svo gott.
Á laugardainn fórum við á markað til Almoradí. Vá það var sko stór markaður skal ég segja ykkur....mismikið drasl reyndar en við gátum samt keypt aðeins ![]()
Þess á milli var svo bara legið í sólbaði í 20° hita og slappað af. Ferðin var í alla staði mjög góð og bara takk enn og aftur fyrir okkur Þórdís og Dúddi ![]()
Annars er bara allt fínt að frétta. Ég er alltaf í ökutímum sem gengur bara mjög vel. Er alltaf að keyra hér á sveitavegum á 100 km/h hehe. Fer svo einhverntíman á næstunni á hraðbrautina
bara 150 km/h takk fyrir ![]()
Læt þetta nægja í bili
Adios
Hvernig finnst ykkur nýja útlitið á síðunni minni? Ég gerði það alveg sjálf!! *Stolt*
Enn og aftur að koma frí....í þetta sinn er það vetrarfrí/annaskipta frí. Ég er svoldið hrifin að þessu systemi hér í Deutschlandi með fríið. Stutt sumarfrí en fullt að smá fríum hér og þar. Núna fáum við reyndar bara 4 daga helgi en það dugar okkur nú til að skreppa aðeins til Spánar hehe. Sérstaklega þar sem ferðalagið er nú ekki langt og ferðin mjög ódýr. Fljúgum annað kvöld frá Billund í Danmörku til Alicante á Spáni. Þurfum svo að keyra í eitthvað 45mín og þá erum við komin til Þórdísar&Dúdda. Fáum meira að segja fría gistingu ![]()
Á morgum fáum við einkanirnar okkar
stress?? neinei ekkert stress hér. Ég held ég viti einkanirnar allar hehe. Þeir eru því miður ekki alveg nógu góðar og hef ég grun um að ég sé ekki langt frá falli
veit samt alls ekki hvað ég á til bragðs að taka því ég tel mig vera að leggja mig 100% fram við að gera mitt besta en nei það dugar ekki. Einhver ráð??
Ég var að hugsa um það í dag hvort það væri til einhver manneskja sem heitir Hitler með eftirnafn? Þær væri nú gaman að reyna að komast að því hehe. Ég ég mundi til dæmis giftast einhverjum sem heitir eitthvað Hitler og ég mundi svo breyta eftirnafninu mína þá héti ég Hafrún Huld Hitler
hljómar alveg ágætlega hehe, eða? Nei en svona í alvöru þá held ég að það heiti engin Hitler með eftirnafni. Ég hef samt stundum verið að grínast með Hitler (þjóðverjunum til mikillar gleði) og sagt að þriðja heimstyrjöldin muni vera kennd við mig. Ég meina önnur heimstyrjöldin og Hitler og þriðja heimstyrjöldin og Hafrún
neinei þetta er bara smá djók!
Ég held ég hætti nú bara áður en ég bulla meira hehe.
Kveðja
Hafrún Huld
Leikurinn í þann mund að byrja og er því tilvalið að henda inn einu bloggi. Ég hef nú svosem ekki mikið fylgst með EM í þetta skiptið en ég sá leikin í gær og á móti þjóðverjum. ÁRAM ÍSLAND!!
Já langt síðan ég bloggaði eins og alltaf. Vona að mér sé fyrirgefið fyrst jólabloggið var svona langt hehe. Skólin gengur ágætlega þrátt fyrir að kennararnir hafi verið að refsa manni aðeins að undanförnu fyrir að tala of lítið. Ekkert við því að gera en ég mun sko ekki láta þá gera það aftur. Passiði ykkur bara kennaradruslurnar ykkar.
En það styttist í næsta frí. Við erum að fara til Spánar í næstu viku og verðum fram yfir helgina. Annars er ég nú bara í hálfgerðu fríi núna. Mjög stórt hlutfall kennara er veikur svo næstum allir tímar falla bara niður. Þarf til dæmis ekki að mæta fyrr en 12:30 á morgun og er búin 13:30. Svona er þetta búið vera alla vikuna.
Ég fór á seinustu helgi til Celle með blakstelpunum. Mátti reyndar ekki spila með en fór þeim til halds og trausts hehe. Þeim gekk ágætlega. Voru í 4. sæti af 7.
Jæja læt þetta duga í bili...hef hvort sem er ekkert meira að segja. Búið ykkur samt ekkert undir að fá blogg á næstunni hehe.
Kveðja
Hafrún Huld


















