05maí

Búiđ ykkur undir heimsókn í sumar because I'm coming

Well .... tími á smá blogg, ekki langt samt.

Hollandsferðin var æðipæði. Veðrið var æði og við skemmtum okkur konunglega. Vorum reyndar ekkert mjög sigursælar en aðal málið var bara að hafa gaman af. Við töpuðum þó ekki öllum leikjunum og það sem meira er að ég spilaði aðeins með Svalur

Þó veðrið hafi verið mjög gott á daginn (fyrir utan smá rigningu) þá voru næturna ömurlegar. Ég hef sofið nokkuð oft í tjaldi en ég hef ALDREI upplifað eins mikin kulda eins og þarna. Þið trúið þessu örugglega ekki en ég svaf í 3 buxum, 2 sokkum, 3 peysum og jakka + húfa og trefill og mér var alls ekki heitt. Það er hryllilega óþægilegt að sofa þegar það er svona kalt enda held ég að ég hafi aldrei sofið eins vel og ég gerði í nótt hehe. 

Annars var ferðin bara rosa góð. Er strax farin að hlakka til næsta árs hehe.

En að aðalfréttinni. Familie Sigurðsson (eins og sumir mundu kalla okkur) er á leið til Íslands Hlæjandi. Ekki fyrir fullt og allt heldur bara í heimsókn.
FRÁ 23. JÚLÍ - 6.ÁGÚST VERÐUM VIÐ Á ÍSLANDI!!!

Það eru komnar myndir frá Hollandi í myndaalbúmið.

Gruß
Hafrún Huld

05. maí 2008 klukkan 17:57
Hafrún Huld Ólafsdóttir
2 athugasemdir
25apríl

Hvort mundiru vilja drekka 7 glös af blóđi eđa vera međ 7 göt á hausnum??

I'm back in the bloggheim Svalur 

4 vikur í dag frá aðgerð .... hnéið næstum alveg komið í sína rétta mynd fyrir utan smá stirðleika en allt að koma. Læt hér fylgja eina mynd sem var tekin í dag.

Fóturinn minn



Skólinn gengur svona lala .... vorprófatörnin að byrja núna. Er allan maí í 1,2 eða 3 prófum á viku. Við skiluðum í þarseinustu viku blaðinu um hvað fög við vildum taka próf í og svona í stúdentsprófinu. Ekki ráð nema að í tíma sé tekið. Enda vissi ég ekki hvað ég ætti að velja (er sko ekki farin að hugsa svona langt). Og svo komu auðvitað upp vandamál af því að ég er t.d ekki með frönsku og svona ýmislegt. En ég endaði semsagt á því að velja efnafræði, líffræði, ensku, trúarbragðafræði og stærðfræði. Trúarbragðafræði er nú reyndar ekki alveg mitt uppáhalds fag en ég varð að velja eitthvað í þessum geira .... hefði líka geta valið pólitík, sögu eða landafræði en ég held að trúarbragðafræði sé einfaldast. En mig langar pottþétt að velja einhver önnur fög þegar kemur að stúdentsprófi.

Við fáum 5 daga helgi um næstu helgi. Fimmtudag, föstudag og mánudag .... jibbí hlakka til. Blakið er að fara til Hollands að keppa. Ætla nú að fara með þó ég megi ekki spila .... bara svona upp á gamanið. Ég fór nú samt á æfingu í dag og spilaði smá með þó ég geti ekki hlaupið eða skutlað mér á hnéin eða eitthvað slíkt. Hugsa samt að ég byrji ekki strax í blaki aftur (bara til að hlíða læknunum). Ég má byrja að hjóla og synda um miðjan maí en fótbolta, handbolta, blak og svona getur tekið einhverja mánuði í viðbót.

Læt þetta nægja í bili ...

Tschüss
Hafrún Huld

25. apríl 2008 klukkan 20:00
Hafrún Huld Ólafsdóttir
4 athugasemdir
14apríl

Jájá, ár og öld frá síðasta bloggi ég veit. En þó eiginlega ekkert margt búið að ske.  

Hnéið mitt fagra, bláa og breiða er á góðum batavegi. Á föstudaginn voru 14 dagar frá aðgerðinni og þá voru saumarnir teknir. Nú tekur eiginlega bara sjúkraþjálfun við; beyja, lifta, teyja og svona ýmislegt. Lærvöðinn er nú eitthvað farin að rýrna svo ég verð að vera duglega að gera þessar æfingar. Ætli hækjurnar fái svo ekki að fjúka bráðum ... ég nenni þessu engan veginn og hef alls enga þolinmæði fyrir þetta. Hef fullt annað að gera en að kjagast áfram á hækjum.
 

En um helgina fórum við til Danmerkur. Okkur var boðið í fermingu til Kristins Arnars og ákváðum að drífa okkur bara. Keyrðum á laugardaginn og gistum um nóttina í Álaborg. Sumir hafa haldið því fram að ég sé með fordóma gegn Danmörku og dönum og eitt er ljóst; þessi ferð var ekki til að minnka fordómana. Við gistum á SAS hóteli í miðbænum og guð hjálpi mér. 2/3 konum gengu hálf naktar um göturnar (mestalagi í sokkabuxum), bærinn var allur í rusli og drasli og það rigndi eins og alltaf í Danmörku. En fermingarveislan var mjög fín, gaman að hitta svona marga íslendinga og gott að fá að borða mmm.  
Well, þetta var þá allt sem ég hef að segja

 
Bis später 

Hafrún Huld

14. apríl 2008 klukkan 19:22
Hafrún Huld Ólafsdóttir
1 athugasemd
04apríl

Hmmm leiđist

Æi einhverntíman byrjar manni að leiðast frí til lengdar ... sérstaklega ef maður má og getur ekki gert neitt. Og einmitt svona líður mér núna. Dagurinn hjá mér í stuttu máli er svona: vakna, borða, sjónvarp, tölva, hnéæfingar, borða, læra kannski smá, sjónvarp, tölva, hnéæfingar o.s.fr. Frekar leiðinlegt til lengdar get ég sagt ykkur.

Í dag er vika frá aðgerðinni. Hnéið allt að koma til held ég bara. Er ennþá blá, marin og bólgin frá kálfa og langt upp á læri en er farin að geta lyft því og beygt aðeins (eftir að ég fann vöðvana aftur hehe). Ég persónulega kíkti fyrst á skurðina, já þeir eru tveir, í fyrradag og samtals er þetta 11 spor. Einn örugglega 8cm langur á hnéinu sjálfu og svo ca. 2cm þar við hliðina. Vona að saumarnir verði teknir úr á mánudaginn. Geta þeir ekki gróið fastir við skinnið ef þeir eru og lengi í?? 
Ég fór til læknis á miðvikudaginn og hann lét mig hafa sprautu sem á að sprautast í magann til að hindra blóðtappa og ekki nóg með það heldur þarf ég að gera það sjálf. Hmmm .... ég sagði bara: ,,jájá ekkert mál, mamma getur það örugglega" sem hún hefur líka gert en nú flækjast málin. Ma&Pa fóru til Íslands í dag og koma ekki fyrr en á sunnudaginn, já sæll á ég að sprauta mig?? Mér finnst ekkert slæmt að vera sprautuð svo lengi sem ég get horft undan en nú get ég ekki horft undan. Já spennandi að vita hvernig þetta endar í fyrramálið.

Annars er bara rólega helgi framundan ... við Harpa einar heima.

Kveð að sinni
Hafrún Huld

04. apríl 2008 klukkan 20:01
Hafrún Huld Ólafsdóttir
1 athugasemd
01apríl

Loksins komin heim

Jæja loksins komin heim .... ósköp ljúft verð ég að segja. Þessir sjúkrahúsdagar voru nú ekki þeir allra skemmtilegustu sem ég hef upplifað. En aðgerðin er allavega búin og gekk bara mjög vel. Fremra krossbandið var fjarlægt og málmplata og 2 skrúfur settar í staðin. Fyrsta daginn mátti ég ekki gera neitt ... ekki einu sinni fara á klósettið. Það kom sér ágætlega að vera með þjálfaða þvaðblöðru hehe. Mátti svo standa upp strax daginn eftir og labba aðeins og pissa. 

Maturinn á sjúkrahúsinu var ekkert sérlega góður get ég sagt ykkur. Fékk einu sinni virkilega góðan mat ... einhverjar kjötbollur hehe. Í morgunmat var alltaf að minnsta kosti viku gamalt brauð (þokkalegt hart og þurrt). Í hádeginu var heitur matur .... mis góður eins og ég sagði og í kvöldmat var eiginlega bara morgunmatur aftur ... brauð með skinku og osti eða eitthvað samskonar. Enda kom mamma alltaf á hverjum degi með nýtt brauð úr bakaríinu fyrir mig. 

Og ekki voru herbergisfélagarnir skárri hehe. Þegar ég kom þá voru 2 konur í herberginu ... ein um 80 og ein spönsk um 50. Og það sem þær gátu blaðrað. Eftir fyrsta daginn fór samt þessi eldri svo ég fékk að eyða helginni bara með þessari spönsku. Ég get svarið það, hún blaðraði út í eitt 24/7. Núna veit ég nákvæmlega ALLT um fjölskylduna hennar og þeirra líf. En það sem spánverjar geta talað og það hátt Öskrandi. Og það var ekki einu sinni friður á nóttunni. Hún svaf með einhverja súrefnisgrímu og það var svo mikill hávaði í henni að ég hélt að það væri virkilega verið að vinna með vélar fyrir framan húsið á nóttunni. IPodinn semsagt fékk að ganga allar nætur. Svo kom reyndar önnur kona í gær við hliðina á þeirri spönsku svo ég fékk þá frí frá henni hehe. 

En já, svo tekur bara við æfingar, sjúkraþjálfun og gera ekki neitt hérna heima. Vona að komast aftur í skólan á mánudaginn. 

Kveðja 
Hafrún Huld
 

01. apríl 2008 klukkan 14:43
Hafrún Huld Ólafsdóttir
3 athugasemdir
25mars

Geht doch

Vá það er búið að snjóa eiginlega stanslaust síðan í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem það snjóar í Cuxhaven á þessu ári Hlæjandi Harpa er búin að vera úti í nánast allan dag til að nýta snjóinn. Hún skóf allan garðinn og náði þá að búa til lítin sætan snjókarl.

Annars voða lítið að frétta ... hnéið alveg ágætt svosem, bíður bara eftir að komast í aðgerð. Fer á fimmtudaginn upp á sjúkrahús í einhvern undirbúning fyrir svæfinguna og fer svo í aðgerðina á föstudagsmorgun. Ég get nú ekki sagt að ég sé eitthvað voða spennt sko en verður að gerast.

Ætlaði bara svona rétt að láta vita að mér. Reikna ekki með að blogga fyrr en eftir aðgerð (einhvern tíman í næstu viku).

Kveðja
Hafrún Huld

P.S: Megið alveg kvitta

25. mars 2008 klukkan 19:03
Hafrún Huld Ólafsdóttir
2 athugasemdir
24mars

Málshátturinn minn

Bregður barni til ættar

24. mars 2008 klukkan 13:20
Hafrún Huld Ólafsdóttir
Engin athugasemd
20mars

Tja hvađ skal segja??

Já ég er eiginlega bara orðlaus. Ég er búin að vera hjá óteljandi mörgum læknum vegna hnésins míns. Fór til fyrsta læknisins kl. 11 í morgun og var að koma heim frá þeim síðasta núna. Engin komst þó að sömu niðurstöðunni en sá seinansti staðfesti það. Og ekki voru það nú góðar fréttir ... fremra krossbandið mitt er rifið Öskrandi. Frábærar fréttir eða? Það þýðir að í næstu viku þarf ég að fara í aðgerð og allt sem henni tilheyrir. *ANDSKOTINN*. En jæja ekkert við því að gera. 4 dagar á sjúkrahúsi, ekkert Sport í 3 mánuði og eitthvað minna af skóla. Svosem ágætt að fá aðeins lengra páskafrí en það er alls ekki það sem ég þarf á að halda ... einkannirnar líta ekki svo vel út.

En nóg í bili ... 

Kveðja 
Hafrún með rifið krossband Gráta

20. mars 2008 klukkan 15:47
Hafrún Huld Ólafsdóttir
7 athugasemdir
19mars

Komin heim

Er komin heim ... ferðin var æði en ég nenni ekki að blogga. Er hinsvegar búin að setja myndirnar inn í albúmið.

Njótið .... kem með blogg fljótlega

19. mars 2008 klukkan 14:08
Hafrún Huld Ólafsdóttir
Engin athugasemd
03mars

Pirr

Well, 4 dagar í Austurríki og allt í klúðri. Þannig er með mál í vexti að ég fæ ekki tryggingu...hversu fáránlega sem það hljómar. Ég fór í dag niður í tryggingastofnum og ætlaði að gá hvort sjúkratryggingarkortið mitt gilti í útlöndum og ef ekki þá ætlaði ég að sækja um það. En fyrst við erum ekki þjóðverjar fæ ég ekki tryggingu sem gildir í útlöndum heldur bara hérna innanlands. Jú ég skildi það alveg frá fyrri reynslu við að reyna að fá eitthvað hér í Þýskalandi. Hringdi svo í tryggingarmiðstöð Íslands þar sem ég á að vera sjúkratryggð hjá og ætlaði að sækja um evrópskt sjúkratryggingarkort. Nei ekki hægt....kallinn í símanum stóð sem fastast á því að við værum ekki sjúkratryggð á Íslandi og ættum því ekki rétt á að fá sjúkrakost...benti okkur svo á það að ég ætti rétt á því hér í Þýskalandi....já sæll. Hann gaf mér nú samt samband við einhverja konu sem ætlaði að reyna að hjálpa mér og senda mér e-mail hvort ég fengi kort eða ekki....en nei ekki kom e-mail eða svar. Svo á morgun þarf ég að hringja aftur og örugglega að bíða í 40mín eftir að fá afgreiðslu (TR er samt með helvíti góða biðtónlist) og aðrar 40 mín eftir að fá svar eða kort sem ég á rétt á að fá *PIRR*. Ég sem hélt að Þjóðverjar ættu heimsmet í því að flækja hlutina.

03. mars 2008 klukkan 18:17
Hafrún Huld Ólafsdóttir
2 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Hafrún Huld Ólafsdóttir
  • Stađur: Cuxhaven
  • Atvinna: Er í 12. bekk í Lichtenberg-Gymnasium
  • Hjúskaparstađa: Laus&liđug

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit