29ágúst

Takk kærlega fyrir allar afmæliskveðjurnar, bæði í gegnum síma og einnig hér á síðunni. Afmælisdagurinn var mjög góður, fór seinnipartinn og sótti ökuskírteinið með pabba Hlæjandi

Hér er svo mynd af nýja bílnum okkar:



Kveðja

29. ágúst 2008 klukkan 12:56
Hafrún Huld Ólafsdóttir
1 athugasemd
24ágúst

Ekki á morgun ...

Óákveðinn....heldur hinn => 18 Svalur

Ég er nú svo aldeilis heppin að fyrstu 2 tímarnir falla niður á þriðjudaginn þannig að ég get farið strax klukkan 8 að sækja ökuskírteinið mitt Hlæjandi og þar af auki er ég vanalega bara í 4 tímum á þriðjudögum þannig að ég er búin klukkan 11:30.

Annars er skólinn bara byrjaður á fullu. Ekkert hangs hjá þessum þjóðverjum hehe. En aldrei þessu vant þá fékk ég bara hina fullkomnu stundatöflu. Er ekki með neinar eyður, nema á mánudögum en það passar vel. Ég get þá farið heim og fengið mér hádegismat og farið svo í íþróttir. Það er einnig lengsti dagurinn eða til 17:00. Annars er ég bara til hádegis eða jafnvel fyrir hádegi eins og á þriðjudögum og er bara á fimmtudögum svo til 15:30. Er því í 31x45mín (23,25 klst) kennslustundum.
Svo eru enginn bekkjarkerfi lengur svo það eru bara svona svipað kerfi eins og einingarkerfi nema hér er báðir menntaskólarnir í Cux saman þ.e við þurfum að fara yfir í hinn skólan í sum fög og svo þurfa sumir af þeim að koma til okkar. Mér finnst það reyndar ekki gaman, manni langar nú kannski að eyða pásunni sinni í eitthvað annað heldur enn að labba á milli menntaskóla Óákveðinn

Læt þetta nægja í bili. Væri alveg til í nokkur komment. Það hefur ekki verið kommentað hjá mér lengi lengi lengi Gráta

Annars eru allir velkomnir í afmæliskaffi til mín í Cux á þriðjudaginn Hlæjandi

Ciao

24. ágúst 2008 klukkan 16:14
Hafrún Huld Ólafsdóttir
6 athugasemdir
22ágúst

,,viđ erum ekki lítiđ land...

...það stórasta í heimi". hehe æðislegt gullkorn sem okkar ágæta forsetafrú lét frá sér.

22. ágúst 2008 klukkan 19:24
Hafrún Huld Ólafsdóttir
Engin athugasemd
21ágúst

Fögnum nýju skólaári sem er að hefjast og nýju útliti á síðunni !

21. ágúst 2008 klukkan 19:56
Hafrún Huld Ólafsdóttir
1 athugasemd
17ágúst

17. ágúst 2008 Brosandi 

21. ágúst 2008 – skólinn byrjar FýldurÖskrandi
 

26. ágúst 2008 – afmæli – 18 – bílpróf HlæjandiSvalur 


Komin 17. ágúst og sumarið styttist og styttist. Aðeins 3 dagar eftir af sumarfríinu, sorglegt. Það er varla byrjað en um leið búið Óákveðinn En ég nýtt þessar 5 vikur sem búnar eru eins vel og ég mögulega gat. Fyrst komu amma og Maggi og voru í 2 vikur og svo var ég 3 vikur á Íslandinu góða. Íslandsferðin var æði, af veðrinu var alls ekki hægt að ætlast til meira og allt gekk vel. Var að mestu leiti á Ísafirði og í Skötufirði. Var bæði helgina fyrir verslunarmannahelgi og verslunarmannahelgina á Ísafirði og skemmti mér konunglega m.a kveðjupartý á Flateyri, Rokk&Rolla og Mýrarboltinn.

Ég og Arna ferðuðust svo þar á milli eins og sannir túristar um Vestfirðina. Annað var nú ekki hægt í svona góður veðri. Skoðuðum Bolafjall, Skálavík, Flateyri, Suðureyri, Þingeyri og keyrðum einnig inn í Djúp. Skemmtun okkur hryllilega vel eins og sjá má á myndunum sem við tókum.

Fór svo norður og var þar fiskidagshelgina. Skemmti mér einnig vel en ekki eins vel og á Ísafirði hehe. Ísafjörður er bara best í heimi. Þó það hafi vægast sagt verið margir á fiskidaginn hitti ég samt mörg kunnuleg andlit. Gaman að hitta gamla bekkjarfélaga sem ég hef ekki hitt síðan í 10. bekk.

Við fjölskyldan ákváðum að eyða síðustu fríhelginni í Heide Park. Fórum í gærmorgun og tjölduðum þar í nótt. Vorum mjög heppin með veður og nutum síðustu daga frísins.

Ekki má nú gleyma því að þar sem Audi-inn var á verkstæði yfir helgina ákváðum við að fara á nýja VW Fox-inum okkar í Heide Park. Set inn mynd af honum við tækifæri.

Er einnig búin að setja inn 2 ný myndaalbúm, annars vegar Sumarfrí á Ísafirði 2008 og sumarfrí í Skötufirði 2008.

Kveð í bili

Muna að kvitta

17. ágúst 2008 klukkan 19:06
Hafrún Huld Ólafsdóttir
1 athugasemd
23júlí

Ég er farin HEIM til Íslands?!

23. júlí 2008 klukkan 09:08
Hafrún Huld Ólafsdóttir
Engin athugasemd
21júlí

Tschüss

Það er ótrúlega skrítið að hugsa til þess að eftir 2 daga verðum við komin til Íslands. Allir orðnir mjög spenntir en þó smá vafi í okkur því það er búin að spá um 30° á miðvikudaginn og út vikuna hér, týpist fyrir okkur. Við verðum bara að vona að veðrið komi með okkur til Íslands.  

Amma og Maggi fóru í morgun. Það er eiginlega hálf tómlegt núna verð ég að segja. Og eins og ég hef sagt þá var veðrið nú ekki upp á marga fiska þessar 2 vikur sem þau voru hér. Það ringdi örugglega 10 af 14 dögum og hina 4 dagana var brjálað rok. En Cuxhaven er jú þekkt fyrir rok og rigningu.  

Um helgina var blakmót hér í Cux. Hemmhemm ég hef sjaldan lent í jafn ömurlegu veðri og þá. Við Tabea mættum á vespunni hennar á ströndina um klukkan 9!! Það byrjaði að rigna/hellast úr fötu um 9:30 og ringdi og ringdi allan daginn eða þar til ætt var að spila um kl. 15 vegna hættu á eldingum. Ég var vægast sagt köld og blaut þegar ég kom heim. Á sunnudaginn var veðrið ekki mikið skárra. Það ringdi nú ekki en vindurinn sem var. Það var samt hægt að spila og vinna upp það sem ekki var hægt að spila deginum áður. Á laugardeginum unnum við alla leikina en á sunnudeginum töpuðum við öllum hehe. Sýnir að við kunnum bara að spila í rigningu. En það skilaði okkur samt í 4. sæti. 

Jæja nóg í bili. Skrifa aftur þegar ég kem aftur heim til Cux. 

Kveðja
21. júlí 2008 klukkan 19:07
Hafrún Huld Ólafsdóttir
2 athugasemdir
13júlí

Mein Gott, 4. dagur í sumarfríi í dag. Margt búið að bralla þessa 4 daga. Fyrsta kvöldinu eyddum ég og Tabea í að gera Window Color myndir heima hjá henni. Ekkert smá gaman að leika sér aðeins. Erum svo búin að vera á ströndinni ásamt fleirum úr skólanum, bara æðislegt að þurfa ekkert að hugsa um lærdómin, klukkuna eða að vera að deyja úr stressi. Amma og Maggi er svo búin að vera hér í viku. Höfum einnig verið að brasa helling með þeim þó veðrið hafi nú ekki verið að sýna sínar bestu hliðar (spáir þó betra á morgun). Ég, Tabea og Sandra erum að spá í að fara til Hamborgar á morgun að versla og fagna því að skólinn sé búin en ef veðrið verður alveg æði þá ætlum við bara á ströndina að spila blak og ná okkur í smá tan. Svo styttist bara óðum í Ísland.

Bara 10 dagar í þetta *Spenningur*. Amma og Maggi fara á mánudaginn í næstu viku (21. júlí) og við komum svo á miðvikudaginn 23. júlí). Pabbi&Mamma voru svo elskuleg og bókuðu og borguðu flug fyrir mig til Ísafjarðar 24. júlí. Ég verð því á Ísafirði fram á miðvikudaginn fyrir verslunarmannahelgi hjá henni Örnu minni á meðan mamma og pabbi fara norður en fer svo inn í sumarbústað og þar verðum við yfir verslunarmannahelgina. Allir velkomnir í heimsókn. 
 

Ooh lífið er eitthvað svo ljúft. Ég var gjörsamlega alveg búin á því eftir veturinn. Nýt þess gjörsamlega í botn að vera í fríi og gera ekki neitt og hlaða batteríin fyrir næsta vetur (ekki veitir af ef ég ætla að útskrifast eftir 2 ár). 

Muna að kvitta 

Adios
13. júlí 2008 klukkan 20:29
Hafrún Huld Ólafsdóttir
2 athugasemdir
09júlí

Over

Loksins er þetta skólaárið búin, úff. Eitt það erfiðasta sem ég hef upplifað en engu að síður nokkuð skemmtilegt (á köflum allavega). Það er frekar skrýtið að hugsa til þess að eftir 2 ár verð ég orðin stúdent ef allt gengur að óskum. En allavega, þetta árið uppskar ég því sem ég sáði því ég náði öllu og komst áfram í 12. bekk (með meðaleinkunn upp á rúma 3 (þýskur mælikvarði)). Happy - Happy - Happy!

09. júlí 2008 klukkan 12:16
Hafrún Huld Ólafsdóttir
4 athugasemdir
06júlí

Jæja eins og alltaf, alltof langt síðan ég gaf mér tíma til að blogga. En að þessu sinnu ef ég þó frá ýmsu að segja.  

-         amma og Maggi eru að koma á morgun
-         skólinn er búin að miðvikudaginn
-         17 dagar í að við förum til Íslands. 

Í sambandi við 11. bekk og að komast upp í 12. þá bendir allt til þess að ég hafi komist í gegn en ég þori eiginlega ekki að fagna fyrr en ég sé það á miðvikudaginn. Það er búið að gefa út hverjir þurfa að taka 11. bekk aftur og úr mínum bekk þurfa ¼ (6) að taka bekkinn aftur. Frekar hátt hlutfall. 

Okkur var boðið í brúðkaup í gær hjá fólki sem pabbi þekkir í gegnum vinnuna. Konan er frá Portúgal og maðurinn frá Spáni svo þetta var með svona blönduðum hefðum frá Portúgal, Spáni og Þýskalandi. Rosa gaman og bæði mikið og gott að borða, samtals 5 réttir með forrétti og eftirrétt. Við vorum nánast að springa þegar við komum heim hehe. En engu að síður rosa skemmtilegt að gaman að að prófað annað en íslenskt brúðkaup.

Á fimmtudaginn og föstudaginn ringdi hér í Cux og það ekkert smá. Það kom þá vel í ljós hversu lélegur skólinn okkar er orðið því það voru allavega 7 fötur á göngunum því skólinn lak. 

Á föstudaginn komu leikarar frá White Horse Theater. Það er leikhópur sem kemur á hverju vori og sýnir leikrit á ensku. Það vakna alltaf upp sömu gömlu minningarnar hjá mér frá fyrsta árinu mínu hér þegar ég sé þetta. Þessi leikhópur kom hingað fyrstu vikuna sem ég var hér í Þýskalandi og mér fannst það svo frábært að skilja loksins eitthvað. Það var eitthvað svo góð tilfinning. 

Jæja þetta var þá allt að sinni 

Ciao
06. júlí 2008 klukkan 18:31
Hafrún Huld Ólafsdóttir
Engin athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Hafrún Huld Ólafsdóttir
  • Stađur: Cuxhaven
  • Atvinna: Er í 12. bekk í Lichtenberg-Gymnasium
  • Hjúskaparstađa: Laus&liđug

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit