Fór til doksa í dag í þeirri von að vera einhverju nær hvað er í gangi með hnéið. Hann vissi nú ekki beint mikið - sagði að krossbandið væri locker (laust) - og vildi því senda mig til Dr. Franck upp á sjúkrahús því hann ætti að vita hvað er að. Allt í lagi með það, ég skunda upp á sjúkrahús og tala við blíðlega ritarann hans. ,,Já vinan, þú getur fengið tíma hjá honum 12. nóvember" sagði hún. Já sæll, eins gott að ég sé ekki alvarlega veik, þá væri ég löngu dauð áður en ég kæmist til hans. Og það sem meira er, ég pantaði tíma hjá hinum lækninum fyrir 4 vikum. Þannig að samtals mun þetta taka 8 vikur - frábært. Verst að maður getur ekki vitað fyrirfram hvenær maður meiðir sig og pantað tíma eftir því (sem er þá á svipuðum tíma og meiðslin). En þetta er víst bara þýska kerfið og þjóðverjum er bara alveg nákvæmlega sama .....

 

 

..... EKKI MÉR HINSVEGAR!

16. október 2008 klukkan 18:16
Hafrún Huld Ólafsdóttir
Þjóðverjar eru svo yndislega pottþéttir, maður þarf bæði að bíða eftir því að komast til læknis og að komast út aftur, eins og pabbi þinn. Þú ættir bara að láta leggja þig inn, fengir allavega fjóra daga í rannsóknir og etv.fleiri. En það er nú vonandi að þetta sé ekkert alvarlegt að hjá ykkur feðginum. Þú lætur Óla kíkjá á þetta þegar þið komið, hann verður orðinn svo hámenntarður í "bevegelsevitenskap" . Hlakka til að fá ykkur í heimsókn, gangi ykkur vel í að díla við þýska heilbrigðiskerfið...koss og knús
16. október 2008 klukkan 22:43
Hafrún Huld skrifar ...
Já þessir elskulegir þjóðverjar. Þær slepptu pabba nú í dag - hrós fyrir það!
En hérna ég var að pæla, er Óli svona eins og þjóðverjarnir, þarf maður að panta tíma?
17. október 2008 klukkan 18:48

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Hafrún Huld Ólafsdóttir
  • Stađur: Cuxhaven
  • Atvinna: Er í 12. bekk í Lichtenberg-Gymnasium
  • Hjúskaparstađa: Laus&liđug

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit