Habt ihr noch Geld in Island?

Já ég var spurð að því morgun hvort það væri enn til peningar á Íslandi. Spurning hvort það hefur verið meint í alvöru hehe. En allavega náði ég mér í nokkra + punkta í pólitík í morgun því ég vissi svo mikið um mál ganga á Íslandi. Vissi meira að segja meira en kennarinn!

Eftir einn dag byrjar haustfríið okkar. Omæ hvað ég hlakka til að fá að sofa út og slappa af. Ætla þó að vera ýkt dugleg að læra því nánast strax eftir fríið byrja prófin. Þó finnst mér eins og skólinn sé bara nýbyrjaður. Er samt mjög fegin að vera þá búin með prófin fyrir desember. Elska að geta bara slappað af í desember og farið á jólamarkaðinn og svona. Og það sem meira er að ég klára prófin deginum áður en amma og Daði koma í heimsókn.

Ætlaði bara aðeins að láta vita af mér

Tschüss

09. október 2008 klukkan 16:20
Hafrún Huld Ólafsdóttir

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Hafrún Huld Ólafsdóttir
  • Stađur: Cuxhaven
  • Atvinna: Er í 12. bekk í Lichtenberg-Gymnasium
  • Hjúskaparstađa: Laus&liđug

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit