Auf Wiedersehen
Ný síða:
www.123.is/hafrunhuld
Ég hef ekkert að gera - leiðist! Er samt búin að gera heavy dugleg í dag. Gerði heimanámið í trúarbragðafræði, stærðfræði og klárarði næstum alla leiðinlegu ensku bókina. Við eigum að vera búin að lesa Brave new World áður en skólin byrjar aftur. Þemað fyrir stúdentsprófið okkar í ensku er nefnilega science svo hún hentar veel. Þrátt fyrir það afskaplega leiðinleg, óspennandi og erfið bók. Það verður gaman að fara í próf upp úr henni, júhú hlakka til - not!
Pabbi gamli komin heim. Juhú fékk heimfararleyfi á föstudaginn.
Annars bara same old same old. Enn eftir vika í haustfríinu - bara næs. Ætlaði nú að vera ýkt dugleg að læra fyrir öll prófin en ég hef nú ekki komið mér í það ennþá. Á frekar erfitt með að læra meira en ég virkilega þarf (nenni því bara alls ekki).
Fór til doksa í dag í þeirri von að vera einhverju nær hvað er í gangi með hnéið. Hann vissi nú ekki beint mikið - sagði að krossbandið væri locker (laust) - og vildi því senda mig til Dr. Franck upp á sjúkrahús því hann ætti að vita hvað er að. Allt í lagi með það, ég skunda upp á sjúkrahús og tala við blíðlega ritarann hans. ,,Já vinan, þú getur fengið tíma hjá honum 12. nóvember" sagði hún. Já sæll, eins gott að ég sé ekki alvarlega veik, þá væri ég löngu dauð áður en ég kæmist til hans. Og það sem meira er, ég pantaði tíma hjá hinum lækninum fyrir 4 vikum. Þannig að samtals mun þetta taka 8 vikur - frábært. Verst að maður getur ekki vitað fyrirfram hvenær maður meiðir sig og pantað tíma eftir því (sem er þá á svipuðum tíma og meiðslin). En þetta er víst bara þýska kerfið og þjóðverjum er bara alveg nákvæmlega sama .....
..... EKKI MÉR HINSVEGAR!
Ég nenni ekki að fara að sofa. Ég nýt þess svo í botn að fara seint að sofa og sofa út - bara best í heimi - love it!
Fór í bæinn í dag með Söndru minni. Keypti mér enn einar gallabuxur. Úff held ég sé búin að kaupa 4 buxur á síðustu 5 vikum. Kreppan farin að segja til sín hjá mér - buddan orðin tóm
Spurning hvort það eru hús, hjólhýsi og jeppar sem sáu um það eða gallabuxur hehe 
Er að fara til doksa á morgun. Það verður áhugavert að vita hvað hann segir um hnéið mitt sem á að vera gott en er það ekki
er búin að vera með verki síðan í sumar, ég get ekki beygt það almennilega eða strekkt úr því og það brakar alltaf svona fallega í því. Hljómar nú ekki alveg eins og það á að vera en við vonum það besta.
Annars bara same old, same old. Pabbi gamli á spítala. Búin að vera síðan á fimmtudaginn. Náði sér í bronkitis og var bara lagður inn. Löngu búin að ná því mesta úr sér enn læknarnir vilja ekki leyfa honum að koma heim - þýska sýstemið sjáiði til. Ég heyrði einhvers staðar að það væri regla hér að vera minnsta kosti 4 daga á spítalanum. Veit ekki hversu mikið er til í því.
Auf Wiedersehen
Jæja langt síðan ég hef bloggað og gjörsamlega ALLT búið að gerast þá. Við höfum eiginlega bara verið glöð og fegin með að vera ekki á Íslandi síðustu daga. Ég hef nú samt smá grun um að die Finanzkrise komi bráðum til Þýskalands. Kannski ekki eins og á Íslandi en samt aðeins.
Nenni nú ekki að blogga, ætlaði bara klukkast aðeins
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina :
- bera út EXTRA
- frystihúsinu á Dalvík
- bæjarvinnunni
- IceFresh
Fjórar Kvikmyndir sem ég held upp á :
- Stella í orlofi
- Mama Mia
- Dirty dancing
- Löggulíf
Fjórir Staðir sem ég hef búið á:
- Stakkanes 6 (Ísafjörður)
- Svarfaðarbraut 10 (Dalvík)
- Theodor-Storm-Str. 9 (Cuxhaven)
- Ricarda-Huch-Str. 11a (Cuxhaven)
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar :
- Greys Anatomy
- Lost
- Survivior
- Dagvaktin
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum :
- Spánn
- Tyrkland
- Austurríki
- Holland
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg :
- www.mbl.is
- www.business-at-school.net
- www.bb
Fernt sem ég held uppá matarkyns :
- kjúklingur
- saltfiskur
- Píta
- kjúklingasúpa ala Sissa
Fjórar bækur sem ég les oft (ég les ekki bækur oftar en einu sinni)
- Svalasta 7an
- Undir 4 augu
- Mýrina
- barnabækur
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna
- Á Spáni
- Í rúminu mínu
- Einhversstaðar á skíðum
- Á Íslandi
Fjórar manneskjur sem ég vil klukka:
- Örnu Sigríði (sem hefur ekki bloggað í heila öld)
- Lilju Guðrúnu
- Kristínu
- Helgu Þóru
Haustið er komið. Allt orðið svo grátt, laufin byrjuð að falla, vindur hefur aukist og enn rignir. væri alveg til í að leggjast bara í dvala og vakna aftur í apríl, væri voða nice held ég. Mér er oft hugsað til þess hvað það sé auðvelt að vera bara t.d kanína í búri, vakna þegar manni hentar, sofa þegar manni hentar, borða þegar manni hentar o.s.fr.
Haustpestirnar byrjaðar að ganga, mikil veikndi hjá kennurum, þar af leiðindum fellur mikið niður
er t.d bara í 4 tímum á mánudaginn í staðinn fyrir 10
það þýðir ég er búin 11:30 í staðin fyrir 16:45.
Annars voða lítið að frétta. Hnéið mitt er ekki enn orðið gott, er að spá í að láta kíkja á það í næstu viku. Annað hvort get ég ekki rétt úr því og labba því stundum eins og gamle kerling eða þá ég get rétt úr því en það brakar alltaf í því þegar ég labba. Furðulegt ekki satt? Og það sem meira er að örið mitt er 5x feitara og ljótara en venjulegt ör
Er samt sem áður búin að bóka mig í skíðaferðina til Austurríkis aftur ![]()
Við familian erum líka að fara í skíðaferð. Ætlum til Noregs til Sigrúnar og co 26. desember og vera fram yfir áramót
hlakka hlakka til!!
Knús&Kram
Sko mig, ég hef tekið upp á því að blogga. Allt í gúddí að frétta út Deutschlandinu. Bara frekar mikið að gera og svona en það fylgir nú bara lífinu held ég ![]()
Samt sem áður er afkastamikil helgi af baki. Ég afrekaði að fara fyrsta sinn á knæpu á föstudaginn með nökkrum krökkum úr skólanum. Var mjög gaman, var reyndar bílstjóri (hvað annað þegar maður er sá eini sem er orðin 18
). Svo á laugardaginn fórum við Tabea til Bremen, aðalega í IKEA en kíktum líka í nokkrar aðrar búðir. Ég er svo stolt að hafa keyrt alla leið til Bremen og Í Bremen og það sem meira er, við villtumst EKKI. Það búa jú ca. 550.000 íbúar í Bremen *stolt stolt*.
Jæja, mánudagur á morgun
en eins og venjulega verður þetta eins, maður rétt vaknar á mánudegi og það er aftur komin helgi. Ég var að spá í að byrja aftur í ræktinni en svo þegar ég fór að hugsa aðeins betur komst ég að því að ég gæti í mesta lagi farið tvisvar í viku og ég tími ekki að borga 40 evrur á mánuði fyrir það. Svo ætli ég fari ekki bara að skokka eða eitthvað þessi 2 skipti í viku ![]()
Annars eru við að lesa bók í þýsku um þessar mundir. Hún heitir Die Ratten og er eftir Gerhart Hauptmann. Afskaplega óspennandi og leiðinleg en það sem verst er, er að hún er skrifuð á vonlausri þýsku (veit ekki hvað hún er kölluð á íslensku). j þýðir g, va þýðir ver o.s.fr. Dæmi:
Freilein, denn ist doch uns beede jeholfen (beede=beide, jeholfen=geholfen)
Ihr Kind hat et jut wie'n eejnet Kind (jut=gut, eejnet=eigenes)
Mér líður helst eins og ég sé að reyna að berjast gegnum einhverja texta á dönsku eða finnsku. Þokkalega óspennandi tímar framundan í þýsku.
Kveðja
Hingað til hef ég ekki haft mikla trú að stjörnuspám en les þær samt gjarnan. Stjörnuspáin hjá meyjunni var frekar áhugaverð á mbl.is á fimmtudaginn.
Þannig er með mál í vexti að í þýsku í skólanum höfuð við verið að vinna með Ästhetik. Ég hef/hafði satt best að segja ENGA hugmynd um hvað það er svo ég gáði í orðabók og Ästhetik þýðir semsagt fagurfræði. Sæll, hvað er það spyr ég bara?? En allavega, svo var ég að lesa stjörnuspánna á fimmudaginn og hún byrjaði svona: "þú hefur gott auga fyrir fagurfræði,,.
Mér fannst þetta frekar fyndið þar sem ég hef aldrei heyrt þetta orð áður hehe. Ég held að það sé eitthvað til í þessum stjörnuspám, ekki bara eintómt rugl.
Kv.
Langar að henda inn bloggi af því ég hef svo fullt annað að gera sem ég bara nenni alls ekki að gera
Skólinn svo sannarlega farin að taka sinn toll af sólarhringnum. Í heildina fer örugglega 2/3 af deginum í eitthvað tengt skólanum og 1/3 eða 8 klukkustundir þá í að borða og éta. Eins og er næ ég nú ekki að gera mikið meira en það. Og það sem meira er, þetta er bara vika númer 2
Prófataflan er komin upp. Er í prófum í byrjun nóvember og eitthvað frameftir honum. Fínt að klára þetta allt fyrir desember. Að þessu sinni var skólaárið líka stytt þannig að við fá hausteinkunirnar 19. desember en ekki í byrjun febrúar eins og áður. Það kemur út að því að við byrjum í frí 20. júní (bara næstum eins og á Íslandi
). En það þýðir líka að við byrjum 5. ágúst!! Alltaf fær maður að prufa eitthvað nýtt. Ég hef aldrei fengið þann heiður að vera í skólanum næstum allan ágúst.
Við fórum til Hamborgar á laugardaginn ![]()
gat eytt alveg helling af peningum og kom rosa ánægð aftur heim með fullt af nýjum fötum.
Annars er veðrið hjá okkur enn ömurlegt. ALLTAF rigning, þrumur og eldingar. Það eru í alvöru bara búnir að vera 2 skóladagar án rigningar. Á mánudaginn var rigningin þó verst. Þegar ég vaknaði kl.6:30 var sól og heiðskýr himinn. Svo 10 mín seinna var enn sól en komnar þrumur og eldingar og ca. 5 mín áður en ég ætlaði að leggja af stað á HJÓLINU í skólann byrjaði sko að rigna og allt varð dimmt svo mamma skutlaði mér. Það ringdi og ringdi og ringdi til kl.8:20 og svo bara búmm, hætti að rigna en allan daginn var dimmt, kalt og dapurlegt úti.
Auf Wiedersehen
P.S. aðeins mánuður og 10 dagar í haustfrí. DÁSAMLEGT!!
